flugfréttir
Ryanair fellir niður allt að 50 flug á dag í sex vikur
Boeing 737-800 þota Ryanair
Ryanair mun aflýsa frá 40 til 50 flugferðum á dag næstu sex vikurnar í þeim tilgangi að leyfa flugmönnum sínum og áhöfnum að komast í sumarfrí eftir stranga vinnutörn í sumar.
Þetta mun hafa mikil áhrif á ferðalög fjölda farþega sem hafa lýst yfir óánægju sinni en félagið mun
endurbóka flesta farþega með öðrum flugferðum.
Ryanair segir að þetta sé einnig gert til þess að bæta stundvísi félagsins sem er komin undir 80 prósent
sem þýðir að aðeins 20% flugferða eru á réttum tíma.
Talsmaður Ryanair segir að leiðarkerfi félagsins hafi slegið met í júlí og í ágúst og eftir þá törn
sé nauðsynlegt að hliðra flugferðum til svo áhafnir komist í sumarfrí í september og október.
Á þessu sex vikna tímabili mun félagið því fella niður 2% af öllum sínum flugferðum sem samt sem áður
mun hafa áhrif á hundruðir þúsunda farþega.
Ryanair lét fyrstu farþegana vita í gær að flugið þeirra hefði verið fellt niður og var þeim boðið annað flug
eða að fá endurgreitt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.