flugfréttir
United hættir með júmbó-þotuna í næsta mánuði
- Saga Boeing 747 í bandarísku farþegaflugi mun taka enda fyrir áramót
Boeing 747-100 þota United Airlines á flugvellinum í San Francisco árið 1991
United Airlines mun fljúga síðasta áætlunarflugið með júmbó-þotunni 29. október en félagið hefur ákveðið að fljúga því næst sérstakt kveðjuflug með Boeing 747 þann 7. nóvember.
United Airlines ætlaði sér upphaflega að vera með Boeing 747 þoturnar til ársins
2020 en í janúar á þessu ári tillkynnti félagið að það ætlaði að taka júmbó-þotuna
úr flotanum mun fyrr eða með haustinu.
United Airlines mun fljúga síðasta áætlunarflugið með Boeing 747-400 þann 7. nóvember
frá Seoul til San Francisco þann 29. október en búið er að skipuleggja eitt
sérstakt kveðjuflug þann 7. nóvember frá San Francisco til Honolulu sem er sama flugleið og flogin
var með fyrstu júmbó-þotu Pan Am árið 1970.
Boeing 747-400 þota United Airlines í lendingu
United Airlines var með 56 júmbó-þotur í flota sínum þegar mest var árið 1993
en eftir það fór þeim fækkandi hægt og bítandi.
Ekkert flugfélag í Bandaríkjunum hefur haft júmbó-þotuna eins lengi í samfeldri notkun
líkt og United Airlines.
Eftir að United hættir með júmbó-þotuna þá verður Delta Air Lines eina flugfélagið í Bandaríkjunum með Boeing 747 í flotanum en þó aðeins í nokkrar vikur þar sem félagið mun hætta með hana fyrir lok ársins.
Eftir það mun Boeing 747 heyra sögunni til í bandarísku farþegaflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.