flugfréttir

Þörf fyrir allt að 100 Airbus A380 risaþotur í Kína

20. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:00

Eric Chan, forstjóri Airbus í Kína

Airbus segir að markaður sé fyrir 60 til 100 risaþotur af gerðinni Airbus A380 í Kína á næstu fimm til sjö árum.

Airbus er bjartsýnt á að risaþotan eigi eftir að koma sér að góðum notum fyrir kínversk flugfélög til að koma til móts við eftirspurn eftir flugi í landinu.

Þetta kom fram í ræðu Eric Chen, forstjóra Airbus China, á ráðstefnu í Peking en hann tók fram að af þeim 1.480 Airbus-þotum sem eru í umferð í Kína þá sé aðeins að finna fimm Airbus A380 risaþotur en þær eru allar í flota kínverska flugfélagsins China Southern Airlines.

Á sama tíma varð 15% aukning á þeim fjölda farþega sem flugu með kínversku flugfélögum á fyrri helmingi þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra.

„Airbus A380 er öflug vél og góð lausn í flugi milli stórra flugvalla og þá hefur Kína náð að koma á sterkum flugsamgöngum til tveggja heimsálfa vegna landfræðilegrar legu sinnar milli Norður-Ameríku og Evrópu“, segir Chen.

Airbus kynnti Airbus A380plus í júní í sumar

Chen segir að Airbus hafi kynnt Airbus A380plus hugmyndina fyrir kínversk flugfélög sem yrði uppfærð útgáfa af risaþotunni Airbus A380 sem kynnt var í sumar.

Til stendur að auka afköst risaþotunnar með breytingum sem miðar af hagkvæmara loftflæðisstreymis, stærri vænglinga og breytinga á farþegarými.

Ekki er um nýja endurgerð að ræða heldur uppfærslur með hönnunarbreytingum sem er ætlað að gera risaþotuna enn hagkvæmari og er vonast til þess að fleiri pantanir eigi eftir að berast í risaþotuna með tilkomu A380plus. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga