flugfréttir
Rangt hitastig í FMC orsök þess að Boeing 737 hóf sig seint á loft
- Rakst með hjólin utan í aðflugsljósakerfið á hinum enda brautarinnar
Boeing 737-800 þotan var á leið frá Belfast til Corfu í júlí þegar atvikið átti sér stað
Talið er að rangar upplýsingar um hitastig, sem settar voru inn í flugtölvu (FMC) á Boeing 737-800 þotu hjá Sunwing Airlines fyrir flugtak, hafi verið orsök atviks sem átti sér stað þann 21. júlí í sumar en þotan rétt náði að hefja sig á loft á áður en flugbrautin var á enda.
Boeing 737-800 þota félagsins var í flugtaki á flugvellinum í Belfast á leið til Corfu en í frumskýrslu rannsóknarnefndar flugslysa
í Bretlandi kemur fram að þar sem rangt hitastig á flugvellinum var sett inn í flugtölvu vélarinnar hafi aflið á eldsneytisinngjöfinni
ekki verið nægilega mikið í flugtakinu.
Vélin hóf sig það seint á loft að hún rakst með hjólin í aðflugsljós og braut ljósakerfið við hinn brautarendann sem eru 25 sentimetra há og eru staðsett
um 29 metrum fyrir framan brautina.
Rannsóknaraðilar telja að vélin hafi notað 81.5% af N1 sem er töluvert lægra en þau 93.3 prósent sem til þurfti
fyrir flugtakið.
N1 LIMIT glugginn í FMC tölvu á Boeing 737 þotu
Settu óvart inn -57°C stiga frost í stað 16 stiga hita
Fram kemur að útreikningar flugmannanna hafi verið réttir áður en kom að því að mata tölvuna en í þann reit, þar sem átti að setja inn hitastig á
flugvelli sem var 16°C gráður, var óvart sett inn hitastigið í „top of climb“ sem er sú flughæð þar sem farflugið byrjar en hitastigið þar var 57 stiga frost.
Hitastig hefur áhrif á afkastagetu flugvéla þar sem hlýrra loft hefur minni þéttleika og við slíkar aðstæður þarf
flugvél lengri brautarlengd í flugtakið samanborðið við kaldara loft.
Með mjög lágt hitastig í reitnum fyrir hitastig á flugvelli hefur tölvan reiknað út að mun minn afl fyrir flugtakið sem
olli því að hún þurfti mun meiri vegalengd í flugtaksbrunið.
Talið er að vélin hafi náð V1-hraðanum, sem í þessu tilviki voru 144 kts, þegar 900 metrar voru eftir af brautinni en í 1,5 kílómetra
fjarlægð frá flugvellinum var vélin að fara í gegnum 200 fetin.
Rannsóknaraðilar hafa mælt með því að yfirvöld í Bandaríkjunum athugi möguleikann á því að endurskoða hugbúnað
flugtölvunnar.
179 farþegar voru um borð í vélinni og sakað engann og lenti vélin heil á höldnu á Corfu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.