flugfréttir
Turkish Airlines pantar 40 Dreamliner-þotur
Pöntun Turkish Airlines í 40 Dreamliner-þotur er metin á yfir 1.100 milljarða króna
Boeing hefur tilkynnt að Turkish Airlines ætli sér að panta fjörutíu Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9.
Fram kemur að Turkish Airlines muni staðfesta pöntunina síðar en engar frekari upplýsingar
varðandi pöntunina hafa verið birtar né val um tegund á hreyflategund.
„Ástæða þessara pöntunar á Dreamliner-vélunum er til að koma til móts við eftirspurn eftir
flugi með breiðþotum og verða þær notaðar í áætlunarflugi frá þriðja flugvellinum í Istanbul“, segir í yfirlýsingu frá İlker Aycı, forstjóra Turkish Airlines.
Verið er að leggja lokahönd á nýjan flugvöll í Istanbúl sem mun opna í október 2018 en sá flugvöllur
mun taka við Ataturk-flugvellinum.
Turkish Airlines hefur ekki pantað neinar Dreamliner-þotur áður en félagið á von á 75
Boeing 737 MAX þotum og munu afhendingar á þeim hefjast á næsta ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.