flugfréttir
Einkaþota fór út af braut í lendingu í Istanbúl
- Allir í vélinni komust frá borði
Flak einkaþotunnar í gær kvöldi við brautarendann á Ataturk-flugvellinum
Einkaþota af gerðinni Cessna Citation brann til kaldra kola eftir að hún fór út af braut í lendingu á Ataturk-flugvellinum í Istanbúl í gærkvöldi.
Einkaþotan fór í loftið frá Istanbúl áleiðis til Kýpur en skömmu eftir flugtak kom upp vandamál
sem varð til þess að flugmennirnir ákváðu að snúa við til Istanbúl.
Vélin náði ekki að stöðva í lendingu og fór út af braut og yfir steyptan skurð með þeim afleiðingum
að eldur kom upp.
Fjórir voru um borð í þotunni og komust allir lífs af
Fjórir voru um borð í vélinni, tveir flugmenn, ein flugfreyja og einn farþegi. Öll komust þau frá borði
af sjálfdáðum og voru flutt á sjúkrahús til aðhlynningar með minniháttar skrámur.
Ataturk-flugvellinum var lokað um stundarsakir og varð einhver seinkun á flugi en flugvöllurinn
opnaði fyrir flugumferð skömmu síðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.