flugfréttir
Mikil aukning í flugnám hjá Embry-Riddle í Flórída
- Aukinn áhugi rakin til skorts á flugmönnum í Bandaríkjunum
Embry-Riddle starfrækir flugskóla bæði í Flórída og í Arizona
Mikil aukning hefur orðið á umsóknum í flugnám hjá Embry-Riddle Aeronautical University flugskólanum í Flórída en skólinn er einn virtasti flugskóli Bandaríkjanna.
Ken Byrnes, formaður útibús skólans í Daytona Beach, segir að fleiri einstaklingar hafi sótt
um skólann að undanförnu sem megi meðal annars rekja til skorts á flugmönnum í Bandaríkjunum auk þess
sem byrjunarlaun flugmanna hafa tvöfaldast á sl. tveimur árum.
Um 1.350 nýnemar munu hefja skólagöngu sína í haust hjá Embry-Riddle í flugtengdum
fögum í Daytona Beach en þess má geta að í fyrra voru tæp 1.100 sem hófu skólagöngu í Flórída sem er
sambærilegur fjöldi og hefur verið undanfarin ár.
„Þetta er fyrsta stóra aukningin sem við höfum séð í mörg ár“, segir Byrnes, sem tekur fram að
flugmannaskorturinn sé „ánægjulegt vandamál“ fyrir skólann.
„Fyrir nokkrum árum þá laukstu flugnáminu og varðst kannski flugkennari með mögleika á að landa
fyrsta starfinu sem atvinnuflugmaður hjá litlu flugfélagi og þá var spurningin hvort þú gast komist að hjá stóru flugfélagi“, segir Byrnes.
Cessnu-flugfloti Embry-Riddle
Byrnes segir að í dag séu flugnemar að ljúka flugnáminu mun fyrr með tilkomu FastTrack Certificated
Flight Instructor Program verkefnisins og þá býðst þeim einnig að fá R-ATP vottun sem gerir það að verkum
að þeir þurfi ekki að vera með eins marga flugtíma er þeir hefja störf sem flugmaður.
Embry-Riddle flugskólinn hefur bætt við fjórum Cessna-kennsluvélum og telur flotinn því 60 flugvélar
af gerðinni Cessna 172 Skyhawk sem gerir nemendum kleift að fljúga um 300 flugtíma á dag í stað 280 tíma í Flórída.
Höfuðstöðvar Embry-Riddle í Daytona Beach
Þá bætti skólinn einnig við sig 20 nýjum flugkennurum fyrir haustið og allt að fjörutíu aðrir flugkennarar til viðbótar
verða ráðnir á næstu mánuðum.
Embry-Riddle starfrækir einnig flugskóla í Prescott í Arizona en samanlagður kennslufloti
skólans á báðum stöðunum eru 94 kennsluflugvélar og þá hefur skólinn 41 flughermi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.