flugfréttir

Icelandair leitar að flugmönnum framtíðarinnar

- Hæfir einstaklingar munu njóta forgangs til að hefja störf árið 2019

25. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:54

Þeir umsækjendur sem standast inntökuferli verður boðið að hefja flugnám og munu njóta forgangs til starfa hjá Icelandair að námi loknu.

Icelandair hefur ákveðið að setja af stað flugnámsbraut í samstarfi við flugskóla, bæði hér á landi sem og erlendis, til þess að styðja áframhaldandi vöxt félagsins og tryggja sér hæft starfsfólk til framtíðar.

Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að verið sé að setja upp þjálfunarbúðir í samstarfi við Flugakademíu Keilis, Flugskóla Íslands og erlenda flugskóla þar sem flugmenn framtíðarinnar verða þjálfaðir og mun Icelandair aðstoða nemendur við fjármögnun.

Þeir umsækjendur sem standast inntökuferli verður boðið að hefja flugnám og munu njóta forgangs til starfa hjá Icelandair að námi loknu.

Námið verður öllum opið og þess er ekki krafist að umsækendur hafi þegar hafið flugnám. Gert er ráð fyrir að fyrstu nemendur geti hafið nám strax í vetur og gætu hafið störf sem flugmenn árið 2019.

Boeing 757 flughermir Icelandair í Hafnafirði

Þeir sem þegar eru í flugnámi geta einnig sótt um og tekið þátt í þessu verkefni án þess að röskun verði á námi þeirra.

„Þessi leið við nám og þjálfun nýrra flugmanna er þekkt meðal alþjóðlegra flugfélaga og við viljum fara þessa leið til þess að tryggja áframhaldandi vaxtarmöguleika Icelandair“, segir Hilmar B. Baldursson, flugrekstrarstjóri Icelandair. „Hér er um að ræða nýja leið að flugmannsstarfi, viðbótarleið við þær leiðir sem fyrir eru og hafa gefist vel, sem miðar að því stækka þann hóp sem vill leggja flugið fyrir sig“, segir Hilmar. 

Námsbraut Icelandair verður kynnt á opnum kynningarfundi þann 27. september næstkomandi kl. 17:00 í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði. Fundurinn er öllum opinn og hugsaður fyrir þá sem vilja vita meira um námsbrautina.

Skráning á fundinn fer fram á heimasíðu Icelandair.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga