flugfréttir
United mun fljúga áætlunarflug sem tekur 16 mínútur
- Verður stysta áætlunarflug Bandaríkjanna
Flugið frá San Francisco til Santa Rosa mun taka 16 mínútur
United Airlines hefur tilkynnt nýja flugleið sem mun verða stysta áætlunarflug Bandaríkjanna en flugtíminn verður aðeins 16 mínútur.
United Airlines mun fljúga milli San Francisco og Santa Rosa, norðanmegin við Golden Gate brúnna, en flogið verður á Sonoma County flugvöllinn sem er í um 106 kílómetra fjarlægð frá San Francisco flugvelli.
Þótt að farþegar munu aðeins koma til með að verja 16 mínútum í loftinu þá mun United Airlines
gefa fluginu 45 mínútur í áætlun sinni þar sem einhver tími mun fara í aðflug, biðflug og akstur á vellinum.
Þrátt fyrir aðeins 16 mínútna flugtíma þá kemst flugið ekki í Heimsmetabók Guinness sem stysta
áætlunarflug heims þar sem það stysta er flugið á milli tveggja Orkneyja á Skotlandi sem tekur aðeins 2
mínútur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.