flugfréttir

Rússar og Kínverjar í samstarf um hönnun nýs hreyfils

- Undirrita samning um samvinnu á þróun hreyfils fyrir nýja breiðþotu

26. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:52

Rússar og Kínverjar ætla báðir að koma með nýja breiðþotu á markaðinn eftir áratug

Rússar og Kínverjar hafa skrifað undir samstarfssamning um þróun og hönnun á þotuhreyfli fyrir nýja tegund breiðþotu sem til stendur að smíða.

Það eru fyrirtækin United Engine Corporation (UEC) og kínverska fyrirtækið AECC Commercial Aircraft Engine (AECC) sem skrifuðu undir samning um samstarfið á dögunum á Aviation Expo China ráðstefnunni sem fram fór í Peking.

UEC segir að aðaláherslan fyrst um sinn verði að rannsaka eftirspurnina eftir breiðþotum og þarfagreina markaðinn með tilliti til fjölda viðskiptavina.

Kínverjar og Rússar höfðu áður lýst yfir fyrirhuguðu samstarfi við hönnun á nýjum þotuhreyfli árið 2014 en upphaflega ætluðu Kínverjar að hanna hreyfilinn á eigin spýtur en síðar var leitar eftir samstarfi við Rússa.

United Engine Corporation vinnur nú þegar að hönnun og þróun á Aviadvigatel PD-35 hreyflinum fyrir breiðþotur sem Rússar hyggjast smíða en sá hreyfill er væntanlegur á markaðinn árið 2030.

Verkefnið er varðar hönnun á nýrri rússneskri breiðþotu nefnist LRWBCA sem stendur fyrir „Long-Range Wide-Body Commercial Aircraft“ en upphaflega hefur staðið til að sú breiðþota muni koma með hreyflum frá Rolls-Royce eða General Electric.

Talið er að hægt verði að selja nýja rússneska breiðþotu í 800 til 1.000 eintökum en afhendingar gætu hafist árið 2027.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga