flugfréttir
Fór of nálægt fjalli eftir flugtak frá Hong Kong
Boeing 747-8 fraktþota Atlas Air í flugtaki frá Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong
Atvik átti sér stað á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong sl. sunnudag er júmbó-fraktþota af gerðinni Boeing 747-8F frá Air Atlas tók beygju of snemma eftir flugtak frá vellinum.
Vélin, sem var að fljúga fyrir Cathay Pacific Cargo, var á leið til Anchorage í Alaska en skömmu eftir flugtak tók vélin
beygju til hægri of snemma með þeim afleiðingum að vélin fór of nálægt Lo Fu Tau fjallið á eyjunni Landau.
Hefðbundin brottfararleið frá brautinni liggur hinsvegar lengra til austur og taka vélarnar hægri beygjuna þegar þær eru komnar lengra frá og í öruggri fjarlægð frá fjallinu.
Vélin hélt áfram og kom aftur inn á flugleiðina eftir beygjuna og hélt þaðan réttri stefnu og flaug því næst áfram til Anchorage.
Samanburður á Flightradar24.com
Þegar vélin tók beygjuna var hún að yfirgefa tíðnina hjá turninum og var verið að afhenda samskiptin yfir til
brottfararstjórnar.
Íbúar við Discovery-flóa á Lantau-eyjunni tilkynntu um gríðarlegar drunur og hávaða rétt fyrir miðnætti á sunnudag þar sem þeir heyrðu þotu fljúga mjög lágt yfir heimilum sínum og töldu þeir að hún hafi farið nálægt fjallinu sem gnæfir yfir í 1.500 feta
hæð frá sjávarmáli.
Aðeins eru 3 mánuðir frá því að sambærilegt atvik átti sér stað á flugvellinum í Hong Kong er Airbus A320 þota
frá Air China tóku beygju of snemma og stefndi á Landau-fjallstindinn eftir flugtak sem er aðeins vestar
á eyjunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.