flugfréttir
Ryanair fellir niður 18.000 flugferðir til viðbótar
- Hætta flugi á 34 flugleiðum í vetur
Boeing 737-800 þota Ryanair
Ryanair hefur ráðist í enn frekari niðurskurð á flugleiðum en í gær tilkynnti félagið að búið væri að fella niður 18.000 flugferðir til viðbótar í vetraráætlun sinni.
Flugferðirnar 18 þúsund verða felldar niður á ferðatímabilinu frá nóvember fram í mars 2018 og
bætast þær því við þær tugþúsundir flugferða sem félagið mun fella niður fram til loka október sem
tilkynnt var um í seinustu viku.
Ryanair mun taka 25 Boeing 737-800 þotur úr umferð í vetur vegna skorts á flugmönnum og þá
verða 34 flugleiðir felldar niður í vetur.
Ofan á þetta þá mun Ryanair hafa tíu færri þotur í umferð í flotanum frá og með apríl á næsta vori
sem mun skerða leiðarkerfi félagsins enn frekar.
Þrátt fyrir þennan fjölda flugferða sem verða felldar niður með 25 færri þotum þá mun þetta aðeins hafa
áhrif á 1% af flugferðum Ryanair í vetur en samt mun niðurskurðurinn hafa áhrif á hátt í 800.000
farþega.
Ryanair segir að búið sé að hafa samband við farþeganna 400 þúsund og þeim boðið að fljúga með
öðru flugi eða fá endurgreitt.
Ryanair hafði spáð því að 131 milljón farþega myndu fljúga með félaginu til enda fjármálaársins
sem endar 31. mars 2018 en þeir verða 2 milljónum færri eftir þessa hagræðingu og lækkar talan
því niður í 129 milljón farþega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.