flugfréttir
Alaska Air Cargo fær fyrstu Boeing 737-700 fraktþotu heims
Vélinni var breytt úr farþegaþotu yfir í fraktþotu í Tel Aviv
Alaska Air Cargo hefur kynnt til sögunnar fyrstu Boeing 737-700 þotuna sem hefur verið breytt í fraktþotu.
Vélin er sú fyrsta sinnar tegunduar sem var áður 737-700 farþegaþota sem hefur verið breytt í
fraktþotu en vélin flaug sitt fyrsta flug sl. þriðjudag er hún flaug með vörur frá Seattle til Alaska.
Það tók 19 mánuði að breyta vélinni yfir í fraktþotu en það verk fór fram í Tel Aviv og var það
fyrirtækið Israel Aerospace Industries sem sá um vinnuna.
Að lokinni breytingu var þotunni flogið til Bandaríkjanna frá Tel Aviv í gegnum Belfast, Bangor í Maine og
áfram til Greensboro í Norður-Karólínu þar sem viðhaldsvinna fór fram á vélinni.
Því næst var henni flogið til Victorville þar sem vélin var máluð í litum Alaska Air Cargo og þaðan flaug hún
til Seattle.
Alaska Airlines mun fá tvær Boeing 737-700 fraktþotur til viðbótar en félagið hefur eina Boeing 737-400 fraktvél
fyrir í flotanum auk fjögurra Boeing 737-400C (combi) véla sem verða teknar úr umferð í næsta mánuði en
þær vélar flytja bæði farþega og frakt á aðalþilfari.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.