flugfréttir
Flugfélög hætta flugi tímabundið til Kúrdistan
Boeing 737-800 þota Iraqi Airways
Stjórnvöld í Írak hafa hvatt alþjóðleg flugfélög til þess að hætta flugi til Erbil í Kúrdistan vegna ótta um vaxandi spennu í kjölfar þjóðaratkvæðargreiðslu sem fer fram um sjálfstæði ríkisins.
EgyptAir, flydubai, Middle East Airlines og Royal Jordanian hafa tilkynnt að félögin hafi
fellt niður allt flug til Erbil og Sulaymaniyah af ótta við átök.
Forsetisráðherra Íraks hefur krafist þess að Kúrdar afhendi flugumferðarumsjón
í nágrenni flugvalla í Kúrdistan til yfirvalda í Írak á meðan þjóðaratkvæðargreiðslan fer fram
en samgönguráðherra Kúrda hefur hafnað þeirri beiðni.
Qatar Airways ætlar sér að halda áfram að fljúga til Erbil svo lengi sem lofthelgin
yfir Kúrdistan er opin og örugg fyrir flugumferð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.