flugfréttir
Áfengisneysla flugstjóra talin orsök flugslyss árið 2015
Slysið átti sér stað þann 3. nóvember árið 2015
Talið er að áfengisneysla hjá flugstjóra hafi verið orsök flugslyss sem átti sér stað er Boeing 737-400 þota frá Shaheen Air fór út af braut í lendingu í flugvellinum í Lahore í Pakistan þann 3. nóvember árið 2015.
Vélin, sem var að koma frá Karachi með 112 farþega innanborðs og sjö manna áhöfn, var í ILS aðflugi að brautinni en kom hinsvegar með hjólin niður á grasfleti við hlið brautarinna.
Vélin hafði ekki farið eftir beinni aðflugslínu auk þess sem hraði vélarinnar var of mikill sem varð
til þess að hún brunaði eftir grasinu og fór yfir tvær akbrautir.
Bæði aðalhjólastellin brotnuðu undan vélinni sem rann á maganum langa vegalengd þar til hún staðnæmdist einungis á nefhjólinu.
Flugmálayfirvöld í Pakistan birtu skýrslu með lokaniðurstöðum á rannsókn slyssins í dag og kemur
fram að flugstjórinn hafi ekki verið með fulla einbeitingu í aðfluginu sem er rakið til áfengisneyslu áður en hann fór um borð.
Bæði aðalhjólastellin brotnuðu undan vélinni
Flugstjórinn gekkst undir áfengispróf eftir slysið og kom í ljós að áfengismagn mældist í blóði hans
en ekkert áfengi fannst í blóði aðstoðarflugmannsins.
Í skýrslunni kemur fram að of mikið álag var á höggdeyfum á vinstra aðalhjólabúnaði vélarinnar
sem framkallaði víbring með þeim afleiðingum að stellið brotnaði undan vélinni.
Viðhald vélarinnar var í lagi áður en slysið átti sér stað og engin bilun hafði komið upp sem hefði
geta orsakað slysið.
Engann af þeim sem voru um borð í vélinni sakaði samkvæmt skýrslunni en þegar slysið átti sér stað kom fram að 10 manns hefðu hlotið meiðsl.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.