flugfréttir
Ryanair hættir við áform um tilboð í Alitalia
Ryanair hafði ætlað sér að gera tilboð í Alitalia en hefur nú dregið þau áform til baka
Ryanair hefur tilkynnt að félagið hafi ekki lengur áhuga á gera kauptilboð í ítalska flugfélagið Alitalia í kjölfar erfiðleikanna sem félagið glímir nú við.
Í yfirlýsingu frá Ryanair, sem gefin var út í gær, kemur fram að vegna vandamála með að manna
flugmenn á þúsundir flugferða, sem hefur þegar valdið mikilli röskun á flugferðum félagsins á næstu
vikum og mánuðum, hafi þessi ákvörðun verið tekin.
Fram kemur að of mikil vinna sé fyrir stjórn félagsins að einblína bæði á þann vanda sem við blasir félaginu og undirbúa yfirtökutilboð í Alitalia.
Félagið hefur gert gjaldþrotanefnd Alitalia viðvart um að félagið ætli ekki að keppast um
tilboð í flugfélagið ítalska.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.