flugfréttir
Malaysian mun fá sex Airbus A330 þotur úr flota Air Berlin
Airbus A330-300 breiðþota Air Berlin
Malaysia Airlines mun taka við sex Airbus A330-300 breiðþotum úr flota Air Berlín.
Air Berlin, sem varð gjaldþrota í ágúst, mun hætta öllu langflugi í október og verður Airbus A330
breiðþotunum skilað til eiganda sem er írska flugvélaleigan AerCap.
AerCap fór fljótlega fram á að fá breiðþoturnar til baka eftir að í ljós kom að Air Berlin varð
gjaldþrota af ótta við að félagið myndi ekki geta greitt lengur leigugjöld af vélunum.
Það er sögð vera ástæða þess að Air Berlin ákvað að hætta langflugi með Airbus A330 til
fjarlægra áfangastaða en flugfélagið sagði hinsvegar að ákvörðunin hafi verið gerð til að hagræða
rekstir félagsins í samræmi við kröfur gjaldþrotanefndar.
Malaysia Airlines hefur nú tryggt sér Airbus A330 vélarnar sex sem verða afhentar félaginu
í febrúar eftir áramót.
Félagið tekur vélarnar á leigu til sex ára eða þar til félagið fær fyrstu Airbus A350 vélarnar
og Dreamliner-vélarnar afhentar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.