flugfréttir
Monarch aftur sagt á barmi þess að hætta rekstri
Airbus A320 þota Monarch Airlines
Sagt er að breska flugfélagið Monarch Airlines sé á barmi þess að leggja árar í bát og eru breskir þingmenn viðbúnir því að félagið mun hætta rekstri á næstu dögum.
Nokkrir viðbragðsfundnir hafa verið haldnir á breska þinginu að undanförnu ef félagið mun fara
á hausinn á næstu dögum.
Monarch er fimmta stærsta flugfélag Bretlands á eftir British Airways, easyJet, flybe og Jet2.com en
þá er félagið einnig elsta flugfélag Bretlands sem hefur haldið sama nafni frá stofnun þess.
Monarch hefur ekki viljað tjá sig um orðróm um yfirvofandi gjaldþrot en komið hefur fram
að félagið sé í viðræðum við easyJet og Wizz Air um yfirtöku á flugrekstri á styttri flugleiðum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fregnir berast af yfirvofandi gjaldþroti Monarch en á sama tíma
í fyrra, þann 26. september, var einnig greint frá því að félagið gæti verið að fara syngja sitt síðasta.
Monarch Airlines hefur frest fram á sunnudag til þess að sækja um svokallað flugferðaskipuleggjendaleyfi
(ATOL Certificate) en annars munu bresk flugmálayfirvöld svipta félaginu leyfi til þess að selja
fleiri fargjöld og sólarlandaferðir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.