flugfréttir

Qatar ætlar að gera Meridiana að þjóðarflugfélagi Ítalíu

- Munu flytja margar þotur í flota félagsins og breyta ímynd þess

2. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:26

Airbus A320 þota Meridiana

Qatar Airways ætlar sér að styðja rækilega við rekstur ítalska flugfélagsins Meridiana og aðstoða það við að verða eitt aðal flugfélag Ítalíu.

Qatar Airways ætlar sér meðal annars að verða félaginu út um þotur í flotann, bæði breiðþotur og minni farþegaþotur sem koma með einum gangi í þeim tilgangi að stækka leiðarkerfi félagsins.

Qatar Airways lýsti því yfir á fimmtudag að félagið hafi keypt 49% hlut í AQA Holding, móðurfélagi Meridiana, en Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, tekur fram að markmiðið sé að gera Meridiana að alvöru þjóðarflugfélagi fyrir Ítalíu.

Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways

Al Baker segir að félagið ætli sér að blása nýju líf í Meridiana með nýju útliti, merki og nýrri ímynd og verði mörgum þotum bætti í flotann á næstu sex mánuðum.

Félagið mun fá Dreamliner-þotur frá Qatar Airways eða Airbus A330 þotur og Boeing 737 MAX vélar sem félagið hefur pantað.

Qatar Airways hefur undirbúið helmingskaup í Meridiana sl. 3 árin en með í kaupunum fylgja ákvæði um lendingarleyfi fyrir Qatar Airways á flugvöllunum í Pisa, Feneyjum og í Tórínó. 

„Við ætlum að tryggja að Ítalir verði vel tengdir með flugsamgöngum á meðan Alitalia er í gjaldþrotaferli“, segir Al Baker.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga