flugfréttir

Þotur frá Qatar Airways koma farþegum Monarch til bjargar

- Um 860.000 farþegar eiga bókað flug með félaginu

2. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:04

Framtíð Monarch Airlines gæti ráðist í dag

Breska flugfélagið Monarch Airlines býður þess að lokaniðurstaða verði tekin varðandi framtíð þess en flugferðaleyfi félagsins rann út á miðnætti í nótt.

Monarch Airlines hafði frest fram á miðnætti aðfaranótt sunnudags til þess að fá leyfið endurnýjað en flugmálayfirvöld í Bretlandi gáfu stjórnendum félagsins fremlengingu á umsóknarfresti í 24 klukkustundir sem rann út á miðnætti.

Þar sem breska ríkisstjórnin er skuldbundin til þess að koma farþegum með Monarch á leiðarenda í samræmi við svokallaðan ATOL-sáttmála eða endurgreiða þeim fargjöldin þá hafa flugmálayfirvöld í Bretlandi verið í startholunum með viðbragðsáætlun sl. daga til að fljúga þeim þúsundum farþegum sem áttu bókað með féleagin á leiðarenda sem annars hefðu orðið strandaglópar.

Tíu Airbus A320 þotur úr flota Qatar Airways hófu sig á loft frá Doha í gærkvöldi til Bretlands til að hlaupa undir bagga en vélarnar flugu m.a. til Birmingham og London Gatwick til að fljúga farþegum sem eiga bókað með flug á næstu dögum.

Tíu Airbus A320 þotur frá Qatar Airways á Flightradar24.com á miðnætti í gær á leið til Bretlands

Um 2.500 starfsmenn starfa hjá Monarch Airlines sem flýgur til sólarlandaáfangastaða frá flugvöllum í Bretlandi á borð við Birmingham, London Gatwick, London Luton og frá Manchester.

Greybull Capital, eigandi Monarch Airlines, hefur sl. mánuði reynt að selja félagið í heild sinni eða að hluta til en án árangurs eða koma með nýtt fjármagn inn í rekstur þess.

Félagið hefur m.a. átt í viðræðum við samkeppnisfélög sín, easyJet, Wizz Air og Thomas Cook en þær viðræður hafa ekki borið árangur.

Monarch Airlines tilkynni í ágúst að taprekstur félagsins á sl. 12 mánuðum námu 41 milljarði króna og hafa verið uppi miklar efasemdir að félagið gæti haldið rekstri sínum áfram í sömu mynd.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga