flugfréttir

Síðasta flug Southwest með Boeing 737-300

2. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:27

Boeing 737-300 þotur Southwest Airlines

Kaflaskil urðu um helgina hjá Southwest Airlines er félagið flaug síðasta áætlunarflugið með klassísku Boeing 737 vélunum (737 Classic) sem hafa vikið fyrir nýju Boeing 737 MAX þotunum.

Southwest Airlines var fyrsta flugfélagið í heimi til að fá Boeing 737-300 afhenta árið 1984 og var vélin í flota félagsins í tæp 33 ár.

Síðasta Boeing 737-300 flugið var flogið frá Houston til Dallas Love flugvallarins með seinustu vélinni sem var afhent til félagsins árið 1996 en vélin er ein af þeim 30 Boeing 737-300 þotum sem hafa verið teknar úr umferð.

Southwest Airlines fékk fyrstu Boeing 737 MAX þotuna í ágúst en félagið ákvað að byrja að fljúga þeim 1. október en fyrst MAX-þotan flaug sama flug og seinasta Boeing 737-300 þotan, nema til baka, frá Dallas Love Field til Hobby-flugvallarins í Houston.

Ekkert flugfélag í heiminum hefur eins margar Boeing 737 þotur og Southwest Airlines en félagið hefur 685 Boeing 737 þotur en flestar þeirra eru af gerðinni Boeing 737-700 sem telja 507 flugvélara af þeirri gerð.

Myndir úr síðasta flugi Southwest með Boeing 737-300













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga