flugfréttir
Cubana sækist eftir að fá Ilyushin Il-96 aftur í flotann
Ilyushin Il-96 þota Cubana flugfélagsins
Kúbverska flugfélagið Cubana ætlar sér að taka aftur í notkun Ilyushin Il-96 vélarnar fjórar sem félagið hafði í flotanum en aðeins ein af vélunum fjórum er í flughæfu ástandi.
Cubana er í viðræðum við flugvélaframleiðandann Voronezh Aircraft Production Association (VASO)
í Rússlandi um að koma hinum Ilyushin Il-96 þotunum aftur í flughæft ástand.
Vélarnar hafa verið í Rússlandi frá því í byrjun árs eftir að Cubana hætti með þær en þoturnar
gengust undir yfirhalningu og skoðun á dögunum. Ef þær standast viðhaldsskoðun munu þær
fara aftur í flota Cubana að ósk félagsins.
Flugvirkjar frá Rússlandi voru sendir í sumar til Kúbu til að sinna viðhaldi á einu Ilyushin Il-96
vélinni sem er enn í flotanum og var meðal annars skipt um nefhjólabúnað á þeirri vél sem
félagið notar í áætlunarflugi frá Havana til Madríd, Parísar og til Buenos Aires.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.