flugfréttir

Icelandair kynnir Economy Light

- Nýr valkostur fyrir farþega sem geta ferðast á lægra verði

4. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:19

Þeir sem bóka Economy Light munu njóta sömu þjónustu um borð og aðrir farþegar og 10 kg handfarangur er innifalinn.

Icelandair hóf í morgun að bjóða nýjan valkost, Economy Light, sem gerir viðskiptavinum kleift að ferðast á lægra verði án þess að innritaður farangur sé innifalinn í verðinu.

Þeir sem bóka Economy Light munu njóta sömu þjónustu um borð og aðrir farþegar og 10 kg handfarangur er innifalinn.

„Við erum að gera ýmsar breytingar á þjónustu okkar og þeirra á meðal er þessi nýi valkostur. Hann hentar mjög vel fyrir þá sem eru á leið í stutta helgarferð eða viðskiptaferð þar sem ekki þarf mikinn farangur. Þeir farþegar munu eftir sem áður njóta góðs af þjónustu Icelandair – með afþreyingarkerfi, óáfengum drykkjum í boði hússins og þægilegu sætaplássi“, segir Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.

Á sama tíma fá tvær af sígildum vörum Icelandair ný nöfn: Economy Class verður Economy Standard og Economy Class Flex verður Economy Flex.

„Við erum að auka breiddina á vöruframboði okkar og koma til móts við mismunandi óskir markaðarins. Við gerum þó ráð fyrir því að Economy Standard, þar sem innritaður farangur er innifalinn, muni áfram verða okkar vinsælasta vara“, segir Guðmundur.

Meirihluti farþega í alþjóðaflugi Icelandair flýgur milli Evrópu og Norður-Ameríku með tengingu á Keflavíkurflugvelli. Í dag flýgur félagið til 20 áfangastaða í Bandaríkjunum og Kanada og 30 borga Evrópu og gert er ráð fyrir að farþegar félagsins verði í heild rúmlega 4 milljónir á þessu ári.

Icelandair býður upp á yfir 600 klukkustundir af afþreyingu í sætisbaki og þráðlaust net allt frá því stigið er um borð og þar til komið er í flugstöð fyrir alla farþega á öllum flugleiðum félagsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga