flugfréttir
Boeing byrjar að framleiða minnstu MAX þotuna
- Boeing 737 MAX 7 kemur á markaðinn í janúar 2019
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 7
Boeing hefur hafist handa við framleiðslu á fyrsta eintakinu af Boeing 737 MAX 7 sem verður minnsta tegundin af þeim fimm útgáfum sem koma af MAX-vélunum.
Fyrsta vængjaparið kom í verksmiður Boeing í Renton á dögunum en fyrsta Boeing 737 MAX 7
verður afhent til Southwest Airlines í janúar árið 2019.
„MAX 7 verður mjög mikilvægur meðlimur af MAX fjölskyldunni þar sem sú vél kemur
með mesta flugþolið af öllum öðrum minni farþegaþotum sem eru á markaðnum í dag“, segir
Keith Leverkuhn, yfirmaður í 737 MAX deildinni.
Boeing 737 MAX 7 mun geta flogið allt að 7.084 kílómetra en til samanburðar þá
hefur 737 MAX 8 flugdrægi upp á 6.510 kílómetra.
Þrátt fyrir að flugfélög hafi pantað yfir 3.900 eintök af Boeing 737 MAX þá hafa fæstar
pantanirnar borist í 737 MAX 7 en aðeins 65 slíkar vélar hafa verið pantaðar.
Þeir viðskiptavinir sem hafa pantað Boeing 737 MAX 7 eru Southwest Airlines, WestJet, Canada
Jetlines og flugvélaleigan AerCap.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.