flugfréttir

Hickey segir af sér sem rekstrarstjóri Ryanair

- Mun ætta sem rekstarstjóri í kjölfar vandans sem upp er komin

8. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 23:26

Michael Hickey mun hætta sem flugrekstrarstjóri hjá Ryanair í lok október

Michael Hickey, rekstrarstjóri Ryanair, ætlar að segja stöðu sinni lausri en hann tilkynnti um helgina að hann ætlaði ekki lengur að vera í sínum stjórnarstól í kjölfar þess sem á undan hefur gengið hjá félaginu.

Hickey mun hætta sem rekstarstjóri Ryanair í enda mánaðarins en yfirmenn hjá félaginu segja að hann muni halda samt áfram að starfa innan félagsins sem „ráðgjafi“.

Hickey er fyrsti yfirmaður Ryanair til þess að stíga niður úr stóli sínum vegna stöðunnar sem upp er komin en margir flugmenn hafa yfirgefið Ryanair sem hefur neyðst til þess að fella niður þúsundir flugferða í vetur þar sem ekki næst að manna allar áhafnir.

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að Hickey hafi verið ómetanlegur starfskraftur fyrir félagið sl. 30 ár.

„Það verður erfitt að finna einhvern í stað hans en við erum þakklát fyrir að fá að hafa hann sem ráðgjafa á meðan við finnum nýjan starfsmann í stöðu rekstarstjóra“, sagði Michael O´Leary í kjölfar uppsagnar Hickey.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga