flugfréttir
Franskir flugumferðarstjórar boða aftur til verkfalls
Talið er að mesta röskunin eigi eftir að verða um Charles de Gaulle og Orly flugvellina í París
Enn eitt verkfallið hjá flugumferðarstjórum í Frakklandi mun skella á í vikunni en frönsk flugmálayfirvöld hafa varað farþega við verkfallsaðgerðum sem eru fyrirhugaðar á morgun, 10. október.
Verkfallsaðgerðirnar eru hluti að allsherjarverkfalli í Frakklandi en öll helstu verkalýðsfélög Frakklands hafa hvatt allt að 5 milljónir manna
til að leggja niður störf sín víðsvegar í landinu frá kvöldinu í kvöld fram á miðvikudagsmorgun.
Megintilgangur verkfallsins í Frakklandi er til þess að mótmæla áætlunum forsetans um að
leggja niður 120.000 störf í landinu og skerða laun í veikindaleyfi.
Flugfélög eru hvött til þess að draga úr flugferðum sínum um allt að 30% og þá sérstaklega
þau félög sem fljúga um flugvellina í París, Lyon, Nice, Marseille, Toulouse, Bordeaux og Nantes.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.