flugfréttir
Tvö fraktflugfélög hörfa frá Schiphol
- Singapore Airlines Cargo snýr aftur til Brussel þrátt fyrir sektir
Boeing 747 fraktþota Singapore Airlines Cargo á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam
Tvö fraktflugfélög hafa tilkynnt um að þau muni hætta að fljúga til Amsterdam og færa starfsemi sína yfir til Belgíu þess í stað.
Schiphol-flugvöllur er nú óðum að fyllast og er orðið takmarkað hversu margar
flugvélar geta flogið um völlinn og er búið að takmarka flug um völlinn við 500.000 flugferðir á ári.
AirBridgeCargo tilkynnti í gær að félagið ætli sér að draga úr flugi um Schiphol og beina
fraktflugi sínu í auknu mæli til Liege í Belgíu.
Singapore Airlines Cargo ætlar sér að hætta öllu fraktflugi til Amsterdam og færa starfsemi sína aftur yfir til Brussel þrátt fyrir hávaðatakmarkanir og þær sektir sem félagið mun þurfa að greiða fyrir að fljúga til Brussel með Boeing 747 júmbó-fraktþotum.
Kaldhæðnin er sú að Singapore Airlines ákvað árið 2016 að hætta að fljúga um flugvöllinn
í Brussel hvegna hávaðatakmarkanna og flytja sig til Schiphol í Amsterdam en félagið hefur nú ákveðið að breyta þeirri ákvörðun og snúa aftur til Belgíu vegna þrengslna á Schiphol.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.