flugfréttir

Air Berlin mun hætta að fljúga 28. október

- Reyna að finna ný störf fyrir 8.600 starfsmenn

10. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:07

Flugfloti Air Berlin

Síðasti dagur í rekstri Air Berlin hefur verið ákveðinn sem er
28. október en eftir þann dag mun félagið ekki fljúga meira í kjölfar gjaldþrots þess.

Thomas Winkelmann, framkvæmdarstjóri Air Berlin, sendi starfsmönnum sínum yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að félagið mun ekki fljúga meira eftir 28. október og eru starfsmenn hvattir til þess að byrja að leita sér að nýrri vinnu.

Dótturfélagið Niki mun halda rekstri sínum áfram í óbreyttri mynd með 38 flugvélum sem félagið hefur í flotanum en gjaldþrotið nær ekki til þess.

Air Berlin mun eiga fund í vikunni með stjórn Lufthansa og easyJet í von um að hægt verði að finna stöður fyrir þá 8.600 starfsmenn sem verða án vinnu eftir rúmar tvær vikur.

Lufthansa hefur nú þegar óskað eftir að ráða í 1.000 störf fyrir dótturfélag sitt, Eurowings, og er vonast til að starfsmenn Air Berlin geti fyllt upp í þær stöður en leitað er að flugmönnum og flugliðum.

Um 8.600 starfsmenn hjá Air Berlin munu missa vinnuna sína eftir 18 daga

„Þrátt fyrir að við séum að reyna finna ný störf fyrir 8.600 starfsmenn Air Berlin þá þurfa þeir einnig að leita sér að nýju starfi á eigin spýtur“, segir Winkelmann.

Þá standa yfir viðræður um að Eurowings muni kaupa vélar úr flota Air Berlin en Matthias Machnig, efnahagsmálaráðherra Þýskalands, vonast til að þeim viðræðum ljúki fyrir lok vikunnar.

Air Berlin er 39 ára gamalt flugfélag en það var stofnað árið 1978 í Vestur-Berlín sem Air Berlin USA en félagið var fyrst í eigu bandaríska landbúnaðarfyrirtækisins Lelco í Oregon.

Fljótlega fór félagið að fljúga leiguflug til áfangastaða í Miðjarðarhafinu og árið 1990 var félagið að lágfargjaldafélagi sem tíu árum síðar varð annað stærsta flugfélag Þýskalands.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga