flugfréttir

Brotlenti nálægt minningarathöfn um flugslysið í Andesfjöllum

- Eftirlifendur flugslyssins árið 1972 urðu vitni að því er Piper Cub fór í sjóinn

11. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:02

Flak vélarinnar var dregið úr sjónum og upp á land. Flugmaður vélarinnar synti í land en farþegi hans lét lífið

Flugvél af gerðinni Piper Cub brotlenti í sjónum skammt undan borginni Montevideo í Uruguay sl. sunnudag, skammt frá sextán manna hópi eftirlifenda sem lifðu af flugslysið í Andesfjöllum árið 1972 sem var samankomin til að minnast flugslyssins.

Flugslysið í Andesfjöllum er eitt þekktasta flugslys sögunnar en þann 13. október árið 1972 fórst Fokker Fairchild flugvél eftir að hafa flogið á fjall í Andesfjöllunum á leið sinni frá frá Montevideo með rugby-lið innanborðs sem átti að spila leik í Santiago í Chile.

29 manns létu lífið í slysinu en þeir sextán, sem komust lífs af, komu saman á sunnudag til að minnast þess að 45 ár eru liðin frá slysinu.

Hópurinn sem lifði flugslysið af í Andesfjöllum árið 1972 varð vitni að flugslysinu á sunnudag

Hópur þeirra sextán einstaklinga, sem lifði slysið af, var að grilla á ströndinni skammt undan Montevideo og varð fólkið vitni að því er Piper Cub vélin fór í sjóinn í um 400 metra fjarlægð frá fjöruborðinu.

Rodrigo Artagaveytia, flugmaður vélinnar, lifði slysið af ein einn farþegi, sem var með honum í vélinni, lést og fann björgunarlið lík hans daginn eftir.

Farþeginn sem lét lífið hét Fernando González Foretic en hann var læknir og hafði starfað fyrir rugby-liðið í Chile en hann, og flugmaðurinn, var hluti af hópnum, sem hafði hisst til að minnast flugslyssins í Andesfjöllum.

Flugslyssins hefur verið minnst árlega sl. 44 ár og hefur minningarathöfn farið fram til skiptist í Uruguay og í Chile.

Flugmaðurinn á Piper Cub vélinni náði að synda í land. Orsök slyssins eru enn ókunn.

Næstkomandi föstudag, 13. október, verða 45 ár liðin frá flugslysinu í Andesfjöllum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga