flugfréttir
John Leahy mun hætta sem sölustjóri hjá Airbus
- Ætlar að hætta fyrir áramót
John Leahy, sölustjóri Airbus
John Leahy ætlar sér að hætta sem sölustjóri Airbus fyrir lok þess árs en Leahy hefur verið öflugur stjórnandi innan herbúða flugvélaframleiðandans evrópska og þótt harður í horn að taka.
Airbus má þakka John Leahy fyrir fjölda pantanna í hundruði nýrra flugvéla og hefur
hann m.a. náð að ganga frá sölum á risastórum pöntunum frá flugfélögum um allan heim.
Leahy hefur verið umdeildur fyrir ummæli sín í garð samkeppnisaðilans Boeing og hefur svarað Boeing fullum hálsi í „sölustríðinu“ við framleiðandann gegnum árin.
Leahy, sem er 67 ára, hefur í nokkur ár ætlað sér að láta af störfum en hann hefur meðal annars
gefið í skyn að hann ætli ekki vera viðstaddur flugsýningina í Dubai sem
hefst um miðjan nóvember.
John Leahy hefur selt tæpar 16 þúsund flugvélar á sínum ferli
Leahy ætlaði sér að hætta fyrr sem sölustjóri Airbus en stjórnendur fyrirtækisins
greindu frá því að þeim hefði tekist að halda í Leahy fram í desember á meðan hann
lýkur nokkrum verkefnum en meðal þeirra er að fá fleiri pantanir frá Emirates í risaþotuna
Airbus A380.
Leahy hefur verið miskunnarlaus sölumaður en hann hóf feril sinn á áttunda áratugnum
er hann byrjaði að selja litlar Piper-flugvélar áður en hann gekst til liðs við Airbus.
Leahy hefur á sínum ferli selt yfir 15.500 flugvélar sem gerir hann að árangursríkasta
sölumanni í heimi er kemur að viðskiptum með flugvélar en eftir margra ára forskot
á Boeing hefur Airbus nú dregist aftur úr í kapphlaupinu við samkeppnisaðilann bandaríska á þessu ári.
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að Leahy hafi sett mikinn þrýsting á að selja
Emirates „skrilljón“ risaþotur til viðbótar áður en hann hættir.
„Hann hefur sagt mér seinustu 4 árin að hann sé að fara hætta á „næsta ári“ svo
ég trúi því þegar ég sé það“, segir Clark.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.