flugfréttir
Aircalin staðfestir pöntun sína í Airbus A320neo og A330neo
Tölvugerð mynd af Airbus A320neo þotu í litum Aircalin
Flugfélagið Aircalin í Kyrrahafi, sem einnig er þekkt undir nafninu Air Calédonie, hefur staðfest pöntun í tvær Airbus A320neo þotur og tvær Airbus A330neo breiðþotur.
Aircalin pantaði vélarnar upphaflega í nóvember í fyrra og hefur félagið nú staðfest pöntunina.
Aircalin er franskt flugfélag sem var stofnað árið 1983 og hefur það höfuðstöðvar sínar
í Nouméa í Nýju-Kaledóníu þaðan sem félagið flýgur til áfangastaða á borð við Fiji-eyjar, Japans,
Nýja-Sjálands, Ástralíu og Vanuatu.
Airbus A320neo vélarnar koma með Pratt & Whitney hreyflum og taka þær 168
farþega en Airbus A330neo þoturnar taka 291 farþega.
Aircalin hefur í dag sex flugvélar í flota sínum, tvær Airbus A320 vélar, eina A330-200 breiðþotu
og tvær Twin Otter DHC-6 skrúfuvélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.