flugfréttir
Lufthansa mun taka yfir 81 þotu úr flota Air Berlin
- 3.000 starfsmenn munu fara yfir til Lufthansa
Lufthansa mun taka yfir 81 flugvél úr flota Air Berlin og 3.000 starfsmenn
Lufthansa hefur tilkynnt að félagið muni taka yfir 81 farþegaþotu úr flota Air Berlin sem varð gjaldþrota í ágúst.
Yfirlýsingin kemur í kjölfar árangursríks fundar með stjórnendum og gjaldþrotastjórn
Air Berlin og var skrifað undir samning um kaupin í morgun.
Þá mun Lufthansa taka um 3.000 starfsmenn frá Air Berlin yfir til sín sem munu fá
vinnu hjá Lufthansa.
Lufthansa mun einnig taka yfir allan rekstur dótturfélagsins Niki auk flugfélagsins LG Walter
sem var í eigu Air Berlin en flugvélar úr flota Niki munu fara einhverjar yfir til lágfargjaldafélagsins Eurowings.
Air Berlin hafði 144 flugvélar í flota sínum en kaupverðið á þeim 81 flugvél sem Lufthansa
mun kaupa eru 300 milljónir evra en með kaupunum mun Lufthansa fá aukið aðgengi
að Tegel-flugvellinum í Berlín og flugvellinum í Dusseldorf.
Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Air Berlin, segist eiga von á því að Evrópusambandið
muni gefa grænt ljós fyrir kaupunum fyrir lok ársins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.