flugfréttir
Icelandair sér fram á 4.5 milljónir farþega árið 2018
- 11% fjölgun frá yfirstandandi ári
„Vatnajökull“, Boeing 757 þota Icelandair, á flugvellinum í Vancouver
Icelandair gerir ráð fyrir að farþegum með félaginu eigi eftir að fjölga um 11% árið 2018.
Búist er við að 4,5 milljónir farþega fljúgi með Icelandair á næsta ári sem er aukning um
400.000 farþega samanborið við yfirstandandi ár.
Flogið verður til þriggja nýrra áfangastaða á næstunni sem eru Cleveland, Dallas og Dublin en
þá mun Berlín bætast við í leiðarkerfið núna í nóvember.
33 farþegaþotur í flotanum næsta sumar
Snemma á næsta ári mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins næsta sumar, 26 af gerðinni Boeing 757 og fjórar af Boeing 767-300 gerð auk nýju vélanna.
Þessi vöxtur mun hafa í för með sér áframhaldandi eflingu ferðaþjónustunnar á Íslandi og þar með efla vöxt og viðgang annarrar starfsemi innan Icelandair Group.
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX þotu Icelandair
Áætlað er að framboðnum sætiskílómetrum fjölgi um 11% milli ára, en flugferðum í millilandaflugi fjölgar um 10%. Munurinn skýrist af hlutfallslega meiri aukningu í Ameríkuflugi en Evrópuflugi.
„Við leggjum áfram áherslu á arðbæran innri vöxt í millilandaflugi félagsins á næsta ári en góður vöxtur hefur verið í leiðakerfinu undanfarin ár. Með nýjum valkosti, Economy Light, aukum við breiddina í þjónustuframboði okkar og komum til móts við mismunandi óskir á markaðnum“, segir
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
„Á næstu 4 árum munum við fá alls 16 Boeing MAX flugvélar afhentar. Með tilkomu þeirra opnast fjölmargir möguleikar til að halda áfram að þróa nýja markaði og fjölga tengimöguleikum farþega okkar enn frekar“, bætir Björgólfur við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.