flugfréttir
Sjö milljónasti farþeginn fór um Keflavíkurflugvöll
Chris og Joanne Bradley komu til landsins frá Belfast með flugi easyJet og eru þau sjö milljónustu farþegarnir í ár sem fara um Keflavíkurflugvöll
Starfsfólk Isavia fagnaði á dögunum sjö milljónasta farþeganum sem fór um Keflavíkurflugvöll í ár er hann kom til landsins frá Belfast með easyJet.
Þau heppnu voru Chris og Joanne Bradley og voru þau leyst út með gjöfum af verslunarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, nánar tiltekið með vörum frá Bláa Lóninu og Fríhöfninni, íslensku ullarteppi frá Rammagerðinni og bók frá Pennanum Eymundsson.
Voru þau hjónin afar ánægð með móttökurnar en þau sögðust spennt að upplifa öðruvísi frí en að liggja á sólbekk við sundlaug. Þau eru á leið í ferðalag um Ísland í fjóra daga og ætla sér að fara Gullna hringinn og í Bláa Lónið auk þess sem þau vonast til þess að sjá norðurljósin.
Voru þau hjónin afar ánægð með móttökurnar en þau sögðust spennt að upplifa öðruvísi frí en að liggja á sólbekk við sundlaug.
Talning farþega um Keflavikurflugvöll skiptist í komufarþega, brottfararfarþega og skiptifarþega og skiptist fjöldinn um það bil jafnt í þrennt en þegar sjömilljónasti farþeginn fór um völlinn skiptist farþegafjöldinn svona: 2.253.992 brottfararfarþegar, 2.319.489 komufarþegar og 2.426.519 skiptifarþegar.
Á síðasta ári náði farþegafjöldinn 6,8 milljónum en í ár er búist við að fjöldinn verði um 8,7 milljónir og því verður bæði fagnað núna þegar sjö milljóna múrnum er náð og einnig þegar fjöldinn fer yfir átta milljónir í desember næstkomandi.
Fjölgun farþega hefur verið mjög hröð um Keflavíkurflugvöll síðastliðin ár og samkvæmt farþegaspá Isavia verður fjöldinn í ár 28% meiri en árið 2016. Þá munu ríflega fjórfalt fleiri ferðast um flugvöllinn í ár en árið 2010.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.