flugfréttir
Isavia kyrrsetur þotu frá Air Berlin vegna skuldar
Airbus A320 þotan á Keflavíkurflugvelli í dag
Isavia hefur kyrrsett farþegaþotu af gerðinni Airbus A320 frá Air Berlin vegna vangoldinna gjalda sem eru tilkomin vegna greiðslustöðvunar félagsins.
Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 22:45 í gærkvöldi eftir flug frá Dusseldorf og var þotan kyrrsett
í kjölfarið en Isavia hefur heimildir í loftferðalögum til þess að kyrrsetja loftför svo tryggja megi greiðslu vangoldinna gjalda, og hefur því úrræði verið beitt einu sinni
áður á Keflavíkurflugvelli.
Um er að ræða vanskil á gjöldum sem stofnaðist til áður en Air Berlin fór í greiðslustöðvun og kemur fram uð um umtalsverðar fjárhæðir er að ræða.
Þeir farþegar sem áttu bókað flug til baka til Dusseldorf var boðið upp á flug með annarri
vél sem var á leið til Berlínar.
Fram kemur í tilkynningu frá Isavia að þessi aðgerð sé eina úrræðið sem félagið hefur til þess að tryggja greiðslu skuldar Air Berlin.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.