flugfréttir
Framleiðsla hefst á Boeing 777X
Starfsmenn Boeing fagna því í gær að framleiðsla er formlega hafin á Boeing 777X
Framleiðsla á fyrstu Boeing 777X þotunni hófst formlega í gær við hátíðlega athöfn er smíði hófst á fyrsta væng þotunnar í nýrri vængjaverksmiðju í Everett sem var sérstaklega reist fyrir Boeing 777X verkefnið.
Fyrsta tegund 777X þotunnar sem smíðuð verður er Boeing 777-9 og er áætlað að hún muni
fljúga sitt fyrsta flug eftir 14 til 17 mánuði sem er áætlað eftir áramótin 2019.
Framleiðslan hófst fórmlega í gærkvöldi klukkan 20:00 að íslenskum tíma er vélmenni
boraði festingar í vængeiningu á fyrsta vængnum sem framleiddur verður fyrir Boeing 777-9.
Tölvugerð mynd af Boeing 777X
Boeing 777X mun leysa Boeing 777 af hólmi sem kom á markaðinn á tíunda áratug síðustu aldar
en vélin byggir að hluta til á þeirri tækni sem Dreamliner-þotan býr yfir.
Gert er ráð fyrir að fyrsta Boeing 777-9 þotan muni fljúga sitt fyrsta áætlunarflug ári síðar
en ekki hefur enn verið ákveðið hvaða flugfélag muni taka við fyrsta eintakinu en Boeing
hefur gefið í skyn að Emirates komi sterklega til greina.
Vænghaf Boeing 777X verður 71,8 meter og verður hún stærsta tveggja hreyfla farþegaþota heims
en Boeing 777-9 verður 3 metrum lengri en Boeing 777-300ER sem í dag er lengsta, tveggja
hreyfla farþegaþotan á markaðnum.
Í vængjaverksmiðju Boeing í Everett í gær
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.