flugfréttir

Air India selur varahluti til að drýgja tekjurnar

- Mun losa um töluvert pláss í 10 flugskýlum á Indlandi

24. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:35

Eitt af flugskýlum Air India

Air India hefur fundið nýjar leiðir til þess að drýgja tekjur félagsins en til stendur að selja flugvélavarahluti og íhluti úr þotuhreyflum sem fylla þau 10 flugskýli sem Air India hefur á Indlandi en með því verður hægt að losa um töluvert pláss í skýlunum.

Rajiv Bansal, einn af yfirmönnum Air India, segir að félagið ætli sér að koma ýmsum varahlutum í verð sem hafa legið á lausu í flugskýlum félagsins sem verði seldir á uppboði á næstunni.

Air India hefur 70 starfsstöðvar á Indlandi með tíu flugskýlum þar sem finna má ýmsa varahluti og brotajárn sem til stendur að koma í verð sem hæstbjóðandi getur hirt á sinn eigin kostnað.

„Ég tók eftir því að það er mjög mikið af varahlutum sem liggja út um allt sem við erum ekki að nota. Þannig að við getum sparað pening með því að losa okkur við það og þá losnar um töluvert pláss í flugskýlunum sem við þurfum þá ekki að leigja“, segir Bansal.

Ríkisstjórn Indlands ætlar sér ekki að fjármagna lengur rekstur Air India og er því leitast við að finna leiðir til að koma á hnökralausu einkavæðingarferli sem mun hafa sem minnst áhrif á reksturinn sjálfan.

Air India hefur meðal annars sótt um 58 milljarða króna lán til ríkisstjórnar Indlands til að tryggja afhendingu á þremur nýjum Boeing 777-300 þotum sem félagið mun fá afhentar snemma árs 2018.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga