flugfréttir
Fjórir flugvellir í London munu fyllast innan 10 ára
- Aldrei eins mikil þörf fyrir stækkun Heathrow-flugvallar
Gatwick-flugvöllur úr lofti
Því er spáð að allir flugvellirnir fimm á Lundúnarsvæðinu verði orðnir fullir um miðjan fjórða áratug aldarinnar og fjórir þeirra munu fyllast á næsta áratug.
Þetta eru spár sem gerðar hafa verið í kjölfar niðurstöður rannsóknar á eftirspurn
eftir flugi til og frá London sem breska ríkisstjórnin birti nýlega.
Fimm flugvelli er að finn á London-svæðinu en þeir eru London Heathrow, Gatwick, Luton,
Stansted og London City flugvöllur.
Chris Grayling, samgönguráðherra Bretlands, segir að mestar vonir eru
bundnar við þriðju flugbrautina á Heathrow-flugvelli sem er sú lausn sem
er næst í sjónmáli til að létta á álaginu á þeirri farþegaaukningu sem framundan
er.
Samkvæmt skýrslunni er talið að enn fleiri farþegar eigi eftir að fljúga um flugvellina
í nágrenni Lundúna á næstu árum en gert var ráð fyrir upphaflega.
Ef ekkert er gert til að bregðast við þeirri fjölgun munu flugvellirnir fyllast fyrr en talið var og verða þeir allir orðni það þéttskipaðir árið 2034 að ógjörningur verður að bæta við fleiri flugferðum um vellina.
Fram kemur að einn möguleikinn væri að bæta við annarri flugbraut á Gatwick-flugvelli
sem í dag er stærsti flugvöllur heims sem rekinn er með eina flugbraut.
Flugvélar í aðflugi að London Heathrow
Skýrslan, sem nefnist Airports National Policy Statement, er endurgerð
skýrslu sem birt var fyrr á þessu ári en fram koma niðurstöður á þeim atriðum sem teljast hentugir kostir til að efla flugsamgöngur á suðausturhluta Englands á næstu árum.
Flugiðnaðurinn og flugfélög hafa kallað á enn öflugri aðgerðir af hálfu
Breta til að styrkja flugsamgöngur frá svæðinu í kringum London sem hefur
lengi verið álitinn flöskuháls þar sem takmarkað pláss er um Heathrow-flugvöll.
„Þörfin til að stækka Heathrow-flugvöll hefur aldrei verið eins mikil og nú og
við viljum fá að heyra álit allra“, segir Grayling, samgönguráðherra, en lokaskýrsla með
tillögur að breytingum í flugvallarmálum Breta verður lögð fyrir breska þingið vorið 2018.
Vonast er til að framkvæmdir við þriðju flugbrautina á Heathrow geti hafist ekki síðar
en árið 2021 og er séð fram á að brautin verði tilbúin árið 2025.
Tölvugerð mynd af Heathrow-flugvellinum með þriðju flugbrautinni norðvestur af vellinum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.