flugfréttir
Örn og kanína enduðu í hreyfli á Boeing 737 í flugtaki
Vélin var á leið frá Melbourne til Brisbane sl. föstudag þegar örn með kanínu endaði í vinstri hreyfli vélarinnar
Farþegaþota af gerðinni Boeing 737 þurfti að snúa við skömmu eftir flugtak frá Melbourne í Ástralíu um seinustu helgi eftir að stór örn og kanína enduðu í vinstri hreyfil þotunnar.
Vélin, sem er frá ástralska flugfélaginu Virgin Australia, fór í loftið frá Melbourne áleiðis til Brisbane sl. föstudag og var vélin að klifra í 4.500 fetum þegar flugmennirnir tilkynntu um gangtruflanir í vinstri hreyfli vélarinnar.
Vélin stöðvaði klifur í 5.000 fetum og var snúið strax við til Melbourne þar sem vélin
lenti um 17 mínútum síðar.
Bæði flugmenn vélarinnar og flugfélagið greindu frá því að örn hafði endað inn í vinstri
hreyflinum en hann var með kanínu sem bráð í klóm sínum sem hann hafði veitt. Talið er að örnin og kanína hafi endað í hreyflinum í 400 fetum eftir flugtak.
Fram kemur að ein flugvél af hverjum 2.000 fljúgi á fugl í flugtaki en að fljúga á fugl
og kanínu í einu er þá sennilega mjög sjaldgæft.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.