flugfréttir

„Ekki komið að sólsetri í framleiðslu á Boeing 767“

- Boeing svarar orðrómi um pöntun í farþegaútgáfuna af Boeing 767

27. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:54

Boeing 767-300ER breiðþota Air Astana

Boeing hefur svarað orðrómi um aukna eftirspurn eftir farþegaútgáfu af breiðþotunni Boeing 767 en um daginn var greint frá því að til stæði að auka framleiðsluhraðann á Boeing 767 þar sem von væri á tveimur stórum pöntunum í vélina og þar á meðal í farþegaþotuútgáfuna sem hefur ekki verið framleidd í fjögur ár.

Dennis Muilenburg, framkvæmdarstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing, staðfestir að eftirspurn eftir Boeing 767 hefur aukist að undanförnu og sé þá ekki verið að ræða um KC-46 eldsneytisvélinni eða fraktútgáfuna.

Boeing 767 er eina þotan sem Boeing framleiðir sem kemur sem farþegaþota, herflugvél og fraktflugvél en þrjú ár eru síðan að seinasta farþegaútgáfan af Boeing 767 var afhent til Air Astana.

Boeing 767 í samsetningu í Everett

Eftir að Dreamliner-þotan kom á markaðinn og Airbus A350 þá fóru pöntunum fækkandi í Boeing 767 en seinasta farþegaútgáfan af þeirri þotu var afhent árið 2014.

Boeing hefur hinsvegar fengið margar pantanir í frakþotuútgáfuna og á enn eftir að smíða yfir 60 eintök af Boeing 767-300F frakþotunni.

„Við erum að sjá fram á aukna eftirspurn eftir Boeing 767 og það er greinilegt að sólin er ekki að fara setjast í framleiðslunni á þessari þotu“, sagði Muilenburg aðspurður út í sögusagnirnar án þess að velja játa því að von sé á pöntunum í farþegaútgáfuna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga