flugfréttir
Allegiant Air hættir með MD-þoturnar fyrir lok ársins 2018
McDonnell Douglas MD-80 þotur Allegiant Air
Bandaríska flugfélagið Allegiant Air ætlar sér að vera búið að losa sig við allar McDonnell Douglas vélarnar úr flota sínum á næsta ári.
Allegiant Air hefur yfir 40 McDonnell Douglas þotur í flotanum af gerðinni MD-83 og MD-88
en félagið ætlar að skipta þeim út fyrir nýjum Airbus A320 þotum sem félagið hefur nú byrjað að veita viðtöku.
Allegiant Air stefnir á að allar MD-þoturnar verði farnar út flotanum fyrir lok ársins 2018
eða ári fyrr en upphaflega stóð til.
„Þetta verða endalokin fyrir þessar vélar og við erum þakklátir fyrir alla þá sem hafa starfað
í kringum vélarnar. Níundi áratugurinn var mikilvægur í velgengni okkar og þessar vélar
sköpuðu þann tíma“, segir í tilkynningu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.