flugfréttir
Hawaiian Airlines fær sína fyrstu Airbus A321neo
Fyrsta Airbus A321neo þotan fyrir Hawaiian Airlines
Hawaiian Airlines hefur tekið við sinni fyrstu Airbus A321neo þotu en vélin var afhent frá verksmiðjunum í Hamborg í gær.
Fyrsta áætlunarflug Hawaiian Airlines með Airbus A321neo er áætlað í janúar 2018 frá Oakland
í Kaliforníu til Kahului á Hawaii-eyjum.
Þá verður vélin einnig notuð í flugi frá Honolulu, Maui og Lihue til
Portland, Los Angeles og Oakland.
Hawaiian Airlines átti að fá fyrstu A321neo þotuna fyrir nokkrum mánuðum síðan
en töf varð á afhendingum vegna vandamála með PW1100G hreyfilinn.
Félagið mun fá 17 Airbus A321neo þotur við viðbótar en afhendingar munu standa yfir
til ársins 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.