flugfréttir

Stytting hafin á flugbrautinni í Santa Monica

- Dómari lét ógilda tímabundið nálgunarbann á framkvæmdir borgarstjórnar

29. október 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:46

Frá flugvellinum í Santa Monica

Framkvæmdir eru hafnar við styttingu flubrautarinnar á flugvellinum í Santa Monica í Kaliforníu en mikill hiti hefur verið um flugvöllinn þar sem borgarstjóri Santa Monica hefur barist fyrir lokun vallarins.

Flugmenn, flugvallarsamfélagið og stuðningsmenn vallarins voru nýbúnir að fagna tímabundnu banni við framkvæmdum og hróflun flugvallarins en í seinustu viku úrskurðaði dómari bannið ógilt og dæmi borgarstjórninni í vil með því að heimila framkvæmdirnar.

Flugbrautin á Santa Monica flugvelli er tæplega 5.000 fet á lengd en hún verður stytt um 30% sem samsvarar 1.500 fetum og verður brautin því um 3.500 fet á lengd eftir styttinguna.

Með því munu einkaþotur og stærri vélar ekki geta lent í Santa Monica og verður starfsemi vallarins því eingöngu bundin við litlar flugvélar og þá aðallega eins hreyfils vélar.

Flugvöllurinn hefur verið lokaður frá 21:00 til 7:00 á morgnanna í seinustu viku á meðan fyrsti áfangi styttingarinnar stendur yfir en í næsta áfanga verður flugvellinum lokað í 10 daga samfleytt á meðan lokið verður við að stytta brautina.

Flugbrautin mun styttast um 1.500 fet eftir framkvæmdirnar

„Stytting brautarinnar þýðir að flug um völlinn mun skerðast verulega. Þetta mun hafa neikvæð áhrif á íbúa og viðskiptalífið á svæðinu, almannaflug og flugsamfélagið“, segir Stacy Howard, formaður samtaka viðskipta- og einkaþotuflugsins í Bandaríkjunum (NBAA).

Fyrirtæki í flugtengdum rekstri á svæðinu og flugsamtök á borð við AOPA og NBAA hafa unnið hart að því að finna leiðir til að halda flugvellinum opnum.

Fjölmargir einkaflugmenn eiga flugvélar á Santa Monica flugvelli

„Ákvörðun dómarans um að afnema tímabundna bannið opnar borgarstjóranum dyr til halda áfram með fyrirhugaðar framkvæmdir sínar en við höldum ótrauðir áfram við að nota lagalegan rétt okkar til að halda flugvellinum opnum áfram eins og við höfum gert í marga áratugi“, segir Alex Gertsen hjá NBAA.

Santa Monica og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) komust að niðurstöðu í janúar um styttingu brautarinnar með því skilyrði að flugvellinum verði lokað árið 2028.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga