flugfréttir
London City flugvöllurinn verður stækkaður
- Stærri flugstöð, fleiri stæði og ný akbraut fyrir árið 2021
Tölvugerð mynd sem sýnir hvernig London City flugvöllurinn mun líta út eftir stækkunina
Birtar hafa verið áætlanir er varða stækkun London City flugvallarins en áætlað er að framkvæmdirnar muni nema 55 milljörðum króna.
London City flugvöllurinn er minnsti flugvöllurinn á London-svæðinu en í seinustu viku
var haldið upp á 30 ára afmæli vallarins og má segja að því sé fagnað með stækkun sem fyrirhuguð
er.
Meðal annars stendur til að leggja nýja akbraut samsíða flugbrautinni til að ná fram auknum
afköstum með brautinni og þá er gert fyrir flugvallarstæðum fyrir sjö flugvélar til viðbótar.
Einnig verður flugstöð vallarins stækkuð til að koma til móts við mikla fjölgun farþega en
fyrir árið 2025 er gert er ráð fyrir að 2 milljónir farþegar muni bætast árlega við þær 4.6 milljónir sem fara um völlinn í dag.
Framkvæmdum mun ljúka árið 2021 en þær munu skapa 2.000 ný störf og skila 103 milljörðum
króna til viðbótar á ári í breska þjóðarbúið.
London City flugvöllurinn er staðsettur inn í hjarta Lundúna í miðju fjármálahverfinu
og er hann vel nýttur af farþegum og þá sérstaklega viðskiptafarþegum sem vilja komast
með skjótari hætti til miðborgarinnar frá Evrópu án þess að fara í gegnum Heathrow-flugvöll.
„Seinustu 30 ár hefur London City flugvöllurinn orðið mikilvægari hluti af samgöngukerfi
Lundúna og hefur starfsemi hans eflt atvinnulífið til muna á svæðinu“, segir Declan Collier, framkvæmdarstjóri flugvallarins.
Birtar voru í dag tölvugerðar myndir sem sýna hvernig London City flugvöllurinn mun koma til
með að líta út árið 2021 eftir stækkunina en flugstöðin verður stækkuð um 40.000 fermetra.
Sögu London City flugvallarins má rekja aftur til ársins 1987 er fyrsta farþegaflugið
fór um völlinn sem var flugvél af gerðinni de Havilland Dash 7 frá Brymon Airways sem flaug
með 40 farþega innanborðs til Plymouth.
Aðeins tók 18 mánuði að reisa London City flugvöllinn á sínum tíma og á fyrsta árinu fóru
133.000 farþegar um völlinn en í dag fljúga tólf flugfélög frá vellinum til 46 áfangastaða
í sextán löndum.
Litlar farþegaflugvélar á London City flugvellinum árið 1985
Dash 7 flugvél lendir á London City árið 1988
Fyrsta áætlunarflugið í gær frá London City til Íslands
Þess má geta að í gær var fyrsta farþegaflugið flogið frá London City til Íslands með flugi
British Airways sem mun fljúga til Keflavíkurflugvallar með Embraer-þotum af gerðinni E190SR.
British Airways mun aðeins fljúga til Íslands frá London City á veturnar og verður flogið á
fimmtudögum og sunnudögum fram til 18. mars árið 2018.
Nýja flugstöðin verður tilbúin til notkunar árið 2021
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.