flugfréttir
Rússar hóta að loka lofthelginni fyrir hollenskum flugvélum
- Óánægðir með afturköllun á afgreiðsluplássi á Schiphol
Boeing 747 júmbó-þota KLM í flugtaki frá Schiphol
Rússar hafa hótað því að loka rússnesku lofthelginni fyrir hollenskum flugvélum.
Með því er því mótmælt að hollensk flugmálayfirvöld afturkölluðu nokkur lendingarpláss
hjá rússneska flugfélaginu AirBridgeCargo á Schiphol-flugvellinum.
Þar sem mjög þröngt er orðið á þingi á Schiphol-flugvellinum var ákveðið að skerða
afgreiðslupláss hjá fraktflugfélögunum um 20% en AirBridgeCargo hafði áform um að auka umsvif sín á Schiphol-flugvelli en hefur núna neyðst
til þess að færa starfsemi sína yfir á Liege-flugvöllinn í Belgíu.
Boeing 747-8F fraktþota AirBridgeCargo
Ef Rússar loka lofthelginni fyrir hollenskum flugfélögum mun það valda alvarlegum
vandræðum fyrir flugfélög á borð við KLM Royal Dutch Airlines sem flýgur til fjölmargra
áfangastaða í Asíu en flugleiðir til þeirra staða liggja í langflestum tilvikum yfir Rússland.
Það myndi því lengja flugleiðina um margar klukkustundir ef KLM þyrfti að fljúga aðra leið
til þess að forðast rússneska lofthelgi og þá yrði félagið einnig að fella niður flug til Moskvu
og St. Petersburg.
Fram kemur að viðræður hafi nú þegar átt sér stað milli Rússa og hollenskra stjórnvalda en
Rússar hafa gefið Hollendingum frest fram á laugardag til að leysa vandamálið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.