flugfréttir
Icelandair styrkir nemendur við Háskóla Íslands og HR
- Styrktarfé mun renna til námsgreina og verkefna sem tengjast flugi
Á myndinni eru háskólarektorarnir Ari Kristinn Jónsson og Jón Atli Benediktsson ásamt Birki Hólm Guðnasyni við undirritun samstarfssamningsins.
Icelandair hefur gert samstarfssamning við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavik um stuðning félagsins við nemendur skólanna, einkum meistara- og doktorsnema.
Samstarfið felst í því að Icelandair leggur fjármuni til sérstakra sjóða sem eru í vörslu og umsjón skólanna. Skólarnir ráðstafa fé úr sjóðunum til verkefna sem tengjast flugi og flugtengdri starfsemi og ákveða skólarnir upphæð einstakra styrkja.
„Flugið er orðið að undirstöðuatvinnuvegi á Íslandi og Icelandair er þar leiðandi aðili. Með þessu samstarfi viljum við hvetja til aukinnar menntunnar og þekkingar á þessu sviði. Það er mikilvægt fyrir félagið og fyrir samfélagið,“ sagði Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, við undirritun samningsins.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands sagði við sama tilefni að skólinn fagnaði þessum mikilvæga samningi við Icelandair og stuðningi fyrirtækisins við starf skólans. „Háskóli Íslands er alhliða háskóli og leggur áherslu á að eiga náið samstarf við íslenskt atvinnulíf. Háskóli Íslands býður upp á fjölmargar greinar sem tengjast flugi og flugrekstri. Fjármunirnir verða nýttir til stuðnings við verkefni nemenda í doktors- og meistaranámi í þessum greinum. Þeir munu án efa nýtast vel. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Icelandair,“ sagði rektor Háskóla Íslands.
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík sagði flugið hafa skipt miklu fyrir framþróun Íslands. “Það er í dag orðið burðarás í samfélagi og efnahagslífi landsins. Háskólinn í Reykjavík hefur í mörg ár átt í góðu samstarfi við Icelandair við að efla þekkingu og menntun á sviði flugþjónustu. Við fögnum því innilega þessu framlagi sem mun nýtast vel til að styrkja verkefni nemenda sem tengast flugi og flugþjónustu,” sagði hann.
Birkir bætti því við að flugið sé í dag mikill þekkingariðnaður þar sem Ísland hafi náð frábærum árangri með mikilli uppbyggingu á undanförnum árum. „Til að viðhalda þessum árangri er nauðsynlegt að fá ungt og hæft fólk inn í greinina. Við vonumst til að þetta samstarf verði hvatning til ungs fólks að leita sér þekkingar í þessari mikilvægu atvinnugrein,“ sagði Birkir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.