flugfréttir

Finnair ætlar að vigta farþega fyrir brottför

- Rétt þyngd vélarinnar gerir flugið hagkvæmara

1. nóvember 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:19

Farþegar ganga um borð í farþegaþotu Finnair

Finnair hefur ákveðið að gera tilraun með að vigta farþega og farangur þeirra áður en þeir fara um borð í flug.

Finnair segir að með því að vigta farþega sé hægt að fá nákvæmari mynd af þyngd vélarinnar fyrir flugtak og megi með því ná fram aukinni hagræðingu á hverri flugleið.

Finnair, hefur líkt og fleiri flugfélög, reitt sig á áætlaða þyngdartölu sem útreiknuð var fyrir fram af EASA í Evrópu árið 2009 sem viðmið en Finnair vill gera enn betur og komast að því hversu þungar flugvélarnar eru í hvert sinn.

EASA tók á sínum tíma saman tölur yfir 23.000 farþega og 22.500 ferðatöskur og kom í ljós að meðalþyngd eins farþega er 84 kíló og hvers handfarangurs um 6,7 kíló.

Finnair ætlar að vigta um 150 farþega í hverri flugferð á vegum félagsins í nóvember en farþegar verða þó ekki skyldugir til þess að stíga á vigtina og geta neitað því.

„Það er margt sem breytist milli veturs og sumar. T.d. þá eru farþegar ekki með eins mikin fatnað með sér á sumrin, færri skó og ekki eins mikið af fylgihlutum“, segir Päivyt Tallqvist, talsmaður Finnair.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem flugfélag vigtar farþega til að fá betri mynd á þyngd flugvéla en Uzbekistan Airways gerði sambærilega tilraun árið 2013 og aftur árið 2015 en flugfélagið Samoa Air varð hinsvegar fyrsta flugfélagið í heimi til þess að rukka farþega um fargjald eftir þyngd.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga