flugfréttir
Emirates komið með 100 Airbus A380 risaþotur
Hundraðasta Airbus A380 risaþota Emirates
Emirates hefur tekið við sinni hundruðustu Airbus A380 risaþotu sem félagið fékk afhenta við hátíðlega athöfn í Hamborg í gær.
Ekkert flugfélag í heiminum hefur eins margar Airbus A380 risaþotur líkt og Emirates
og á félagið enn eftir að fá 42 þotur afhentar til viðbótar.
„Þetta er gríðarlegt augnablik fyrir Emirates, Airbus og alla þá sem koma að A380 verkefninu“, sagði
Sheikh Ahmed bin Saeed Al-Maktoum, forstjóri og framkvæmdarstjóri Emirates að tilefni
afhendingarinnar.
Hundraðasta A380 risaþotan kemur í sérstökum búningi sem skartar mynd af Sjeik Zayed, stofnanda
Sameinuðu arabísku furstadæmanna en hann hefði orðið 100 ára á næsta ári og verður árið 2018
kallað „ár Zayed“ í furstadæmunum.
Þá voru einnig viðstaddir athöfnina Tim Clark, forstjóri Emirates, Tom Enders, framkvæmdarstjóri
Airbus ásamt fleirum yfirmönnum í flugheiminum og sendiherra Sameinuðu arabísku
furstadæmanna í Þýskalandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.