flugfréttir
Flugprófanir hefjast með MC-21 þotuna frá Irkut
Irkut MC-21-300 þotan
Rússneski flugvélaframleiðandinn Irkut hefur hafið flugprófanir á MC-21-300 farþegaþotunni.
Flugprófanirnar fara fram í borginni Zhukovsky, skammt frá Moskvu, en vélin flaug
sitt fyrsta flug í apríl í vor.
Vélin flaug í gær fyrsta tilraunaflugið sem stóð yfir í þrjár klukkustundir og voru prófanir
framkvæmdar á stöðugleika og svörun stýra og var vélinni flogið upp í 39.000 feta hæð.
Þar á undan var vélinni flogið þann 17. október frá höfuðstöðvum Irkut í Irkutsk til Zhukovsky.
Í júlí í sumar voru komnar pantanir í 205 Irkut MC-21 þotur frá fimmtán viðskiptavinum en
flestir þeirra eru rússnesk flugfélög og fyrirtæki.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.