flugfréttir
Fór út af braut og staðnæmdist á hlíðarbrúninni
Vélin fór út af brautinni og snérist 120 gráður og staðnæmdist rétt áður en brött hlíð tók við
Litlu munaði að illa færi er einkaþota fór út af braut í lendingu í Brasilíu á dögunum en vélin staðnæmdist á brúninni á brattri hlíð sem tekur við fyrir aftan brautarendann.
Einkaþotan, sem er af gerðinni Embraer EMB-500 Phenom 100, var að lenda á flugvellinum
í Juiz de Fora í Brasilíu, skammt norður af Rio de Janeiro, þann 31. október sl.
Vélin fór út af brautinni í slæmu veðri og snérist í næstum hálfhring og staðnæmdist rétt áður
en mikill halli tók við þar sem 30 metra brekka byrjar undan brautarendanum.
Jioz de Fore er óstjórnaður flugvöllur þar sem flugmenn þurfa sjálfir að kalla sín á milli
í fjarskiptum og engar upplýsingar um veður og ástand brautar er að fá.
Einkaþotan er af gerðinni Embraer EMB-500 Phenom 100
Tveir voru um borð í einkaþotunni, flugmaður og einn farþegi og sakaði hvorugan.
Þegar atvikið átti sér stað var bleyta á flugbrautinni, lélegt skyggni og talið er að flugbrautarljósin
hafi ekki verið kveikt. Þá var vindpokinn rifinn þar sem honum hafði ekki verið haldið við.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.